Námskeið í líkamsþjálfun
Líkt og undanfarin misseri þá stendur blindum og sjónskertum til boða regluleg hópþjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara. Þjálfunin fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun og er í samstarfi við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.
Í þjálfuninni er leitast við að bæta líkamlegan styrk og auka úthald þátttakenda.
Þátttakendur fylgja áætlun sem sniðin er að þörfum hvers og eins.
Í þjálfuninni er miðað að því að:
- bæta grunnþol.
- auka styrk.
- auka liðleika.
- bæta jafnvægi.
- bæta líkamsstöðu og líkamsbeitingu.
Þeir sem koma í fyrsta sinn þurfa að mæta í skoðunar- og viðtalstíma áður en þjálfun hefst. Þeir sem hafa verið áður í þessum hópum geta hafið þjálfun án viðtalstíma. Námskeiðin standa yfir í 14 vikur.
Tímasetning:
Hópur 1: 12.september – 15. desember, þriðjudagar og föstudagar kl. 8:00 – 9:00
Hópur 2: 12. september – 15. desember, þriðjudagar og föstudagar kl. 9:00 – 10:00.
Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir.
Staðsetning: Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin).
Hámarksfjöldi í hvern hóp er 5.
Lágmarksaldur: 18 ára.
Námskeiðsgjald: Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta af gjaldi hvers þátttakanda, en þátttakendur greiða sjálfir 14.000 fyrir námskeiðið sem er 28 æfingatímar (hægt er að skipta greiðslum í 2-3 hluta). Nýjir þátttakendur greiða að auki fyrir einn skoðunartíma.
Skráning fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun í síma 511 4111 eða afl@aflid.is