Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda
einstaklinga afhenti leiðsöguhundinn Skugga formlega til nýs notanda,
fimmtudaginn 1. september síðastliðinn.

Skuggi er íslenskur hundur af Labrador Retriver kyni og þjálfaður á
Ísafirði af Auði Björnsdóttur hundaþjálfara. Nýr eigandi Skugga er Anna
Kristín Gunnarsdóttir og er hún búsett í Reykjavík. Þetta er í fyrsta
sinn sem Anna Kristín fær leiðsöguhund og telur hún að Skuggi muni veita
henni bæði stuðning og sjálfstæði og gera henni kleift að sinna
daglegum og félagslegum þörfum sínum. Undanfarnar vikur hafa þau Anna
Kristín og Skuggi fengið að kynnast hvort öðru en hann hefur verið í
þjálfun með Önnu Kristínu undir leiðsögn starfsmanna Miðstöðvarinnar.

Anna Kristín segist hafa upplifað mikið frelsi við að fá
leiðsöguhund. Hundurinn fylgir henni hvert sem er, og eftir að hún fékk
hann fór hún til dæmis í fyrsta skiptið ein í strætó til vinnu. Einnig
hreyfir hún sig miklu meira en áður og finnur fyrir meira öryggi. Önnu
Kristínu finnst hún geta treyst á að hundurinn gæti hennar og auk þess
sé Skuggi mjög góður félagsskapur. 

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda
einstaklinga hefur í samvinnu við Blindrafélagið unnið að
þróunarverkefni með leiðsöguhunda, sem felst í að fjölga leiðsöguhundum á
Íslandi. Skuggi er tíundi leiðsöguhundurinn sem tekinn er í notkun á
Íslandi síðan árið 2008. Tveimur íslenskum leiðsöguhundum hefur áður
verið úthlutað en annars hafa hundarnir komið hingað til lands frá
Noregi og Svíþjóð. Verkefnið hefur gengið vel og hefur hundunum verið
vel tekið í samfélaginu. Almennt virðist fólk þekkja rétt leiðsöguhunda
til að fara með notendum sínum á alla þá staði sem opnir eru almenningi.
 

Blindrafélagið hefur staðið dyggilega á bak við verkefnið með
fjáröflun, meðal annars með sölu dagatala, en myndir í dagatali
félagsins hafa verið af núverandi leiðsöguhundum, unghundum í þjálfun og
hvolpum sem keyptir hafa verið í verkefnið. Einnig hefur
Lions-hreyfingin stutt verkefnið með fjáröflun, nú síðast með söfnunarfé
Rauðu fjaðrarinnar, landssöfnunar Lions, sem fram fór í apríl 2015.  

Frekari upplýsingar veitir Huld Magnúsdóttir, forstjóri Þjónustu- og
þekkingarmiðstöðvar, í síma 860 9494 og netfangið huld@midstod.is.