Hlúðu vel að sjóninni
Alþjóðlegi sjónverndardagurinn er haldinn annan fimmtudag í október ár hvert. Tilgangur dagsins er að beina sjónum almennings að blindu og sjónskerðingu, endurhæfingu blindra og sjónskertra og vörnum gegn sjónmissi. Í tilefni dagsins vill Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga benda á nokkur atriði sem almenningur getur gert til að hlúa að sjóninni:

Farðu reglulega í augnskoðun
Þú getur verið með alvarlegan sjúkdóm, án einkenna. Sumir augnsjúkdómar geta þróast hratt ef þeir eru ekki meðhöndlaðir.

Ekki reykja
Fólk sem reykir er 3 til 4 sinnum líklegra til að fá aldursbundna augnbotnahrörnun. Með því að hætta að reykja núna, dregurðu úr líkunum á því að þú fáir aldursbundna augnbotnahrörnun.

Borðaðu hollan mat og hreyfðu þig
Borðaðu vítamínauðugan mat. Ofþyngd, kyrrseta og hár blóðþrýstingur eru áhættuþættir sem geta valdið sjúkdómum í augum.

Verndaðu augun þín frá sólarljósi
Notaðu hatt og sólgleraugu með að minnsta kosti 98% vötn gegn fjólubláum geislum sólarinnar.

Notaðu öryggisgleraugu
Notaðu viðurkennd öryggisgleraugu þegar þú stundar íþróttir eða vinnur með verkfæri.

Íhugaðu vítamíninntöku
Ef þú hefur þurra aldursbundna augnbotnahrörnun skaltu ráðfæra þig við augnlækninn þinn um vítamín fyrir augun.