Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnaskerðingu(Miðstöðin) óskar eftir sérfræðingum til starfa:
Helstu verkefni Miðstöðvarinnar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.
Sérfræðingur í tölvu- og tækniráðgjöf
Laust er til umsóknar 100% starf í gerð lesefnis hjá Miðstöðinni.
Meðal helstu verkefna:
- Kennsla og ráðgjöf til notenda á hugbúnaði fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga
- Halda námskeið í notkun hugbúnaðar fyrir blinda og sjónskerta
- Kennsla og ráðgjöf á snjalltækjum og fleira
- Annast uppsetningu tölvutengdra hjálpartækja fyrir blinda og sjónskerta einstaklinga
- Aðstoða við uppsetningu og kennslu á öllum tækjum og búnaði sem Miðstöðin úthlutar
- Þátttaka í rannsóknarvinnu og þróun nýjunga á tæknisviði ásamt umbótaverkefnum
Hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla á sviði tölvu- og tæknimála er nauðsynleg
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
- Góð kunnátta íslensku svo og ensku. Kunnátta í einu Norðurlandamáli er heppileg
Sérfræðingur í gerð lesefnis
Laust er til umsóknar 100% starf í gerð lesefnis hjá Miðstöðinni.
Meðal helstu verkefna:
- Uppsetning og yfirferð á textaskjölum.
- Yfirfærsla námsefnis á stækkað letur og punktaletur
- Uppsetning á skjölum, m.a. með tilliti til mynda
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf og/eða nám sem nýtist í starfi
- Góð færni í Word og myndvinnslu
- Eiga auðvelt með að tileinka sér nýja tækni
- Góð færni í íslensku og ensku
- Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
Frekari upplýsingar um störfin:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2018.
Umsóknir skulu sendar rafrænt á netfangið margretmaria.sigurdardottir@midstod.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðstöfun starfsins liggur fyrir.
Nánari upplýsingar veitir Margrét María Sigurðardóttir og Benjamín Júlíusson í síma 545 5800.
Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnaskerðingu, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík