27. janúar 2021
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur skipað Elfu Svanhildi Hermannsdóttur í embætti forstjóra Miðstöðvarinnar. Elfa er skipuð til fimm ára og tekur til starfa 1. mars næstkomandi.Elfa er öllum hnútum kunnug innan Miðstöðvarinnar. Hún starfaði sem kennsluráðgjafi hjá Blindrafélaginu frá 2007-2009 og starfaði sem þjónustustjóri hjá Miðstöðinni en það fól meðal annars í sér skipulagningu og umsjón á þjónustu á landsvísu ásamt utanumhaldi um námskeið og fræðslu á vegum Miðstöðvarinnar.
Elfa er með B.ed. í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og PGDip í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands. Þá lauk hún PGDip í sérkennslufræðum blindra og sjónskertra nemenda frá University of Birmingham. Elfa kláraði MPM meistaranám í verkefnastjórnun árið 2011 frá Háskóla Íslands þar sem lokaverkefnið fjallaði um sameiningu eða samvinnu stofnana fyrir fólk með skerðingar.
Elfa var forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða árin 2016-2018 þar sem hún stýrði daglegum rekstri og áætlanagerð. Hún gerðist svo framkvæmdastjóri Infomentor árið 2018.
Við bjóðum Elfu velkomna aftur til starfa á Miðstöðinni.