Hlutamynd af klukku með litríkum tölustöfum.

Ráðgjöf og þjónusta

 

Starfsemi Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar er fjölþætt.

Miðstöðin leitast við að veita bestu mögulegu þjónustu fyrir alla sem til hennar leita.

Markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.

Stofnunin skal veita þjónustu á sviði ráðgjafar, hæfingar og endurhæfingar. Jafnframt skal hún þjóna hlutverki þekkingarmiðstöðvar sem aflar og miðlar þekkingu á aðstæðum notenda í því skyni að bæta þjónustu og stuðla að framförum.

Stofnunin skal hafa yfirsýn yfir aðstæður þeirra sem eru blindir eða sjónskertir og gegna samhæfingarhlutverki gagnvart öðrum sem veita umræddum notendum þjónustu. Hún skal einnig sinna fræðslu, ráðgjöf og stuðningi við aðstandendur, skóla og aðrar þjónustustofnanir.

Stofnunin veitir daufblindum og aðstandendum þeirra þjónustu til samræmis við þau verkefni sem talin eru upp í 4. gr. á grundvelli fötlunar þeirra. Þjónustan er einungis á þeim sérfræðisviðum sem stofnunin býr yfir og er veitt í samstarfi við aðra aðila og stofnanir sem veita daufblindum þjónustu.